Fotbolti.net
30.12.13 - 08:00
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net

Upptaka - Margrét Lára: Tekur ekki mark á handboltakalli

Auglýsing
Margrét Lára og Sif Atladóttir í upphitun.

Margrét Lára og Sif Atladóttir í upphitun.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Hertz
,,Það hefur alveg sýnt sig að margar stelpur hafa komið til baka betri ef eitthvað er. Ég hef þessar konur sem fyrirmyndir að þessu sinni,\" segir markadrottningin Margrét Lára Viðarsdóttir en hún opinberaði í síðustu viku að hún er ólétt.

Margrét var í viðtali í útvarpsþætti Fótbolta.net í gær og er hægt að hlusta á viðtalið í spilaranum hér að ofan.
Hún opinberaði óléttu sína með því að breyta forsíðumynd sinni á Facebook í mynd sem tekin var á landsliðsæfingu fyrir einhverjum árum þar sem hún bar bolta undir æfingatreyjunni

,,Þeir sem þekkja mig vissu alveg hvað þetta þýddi. Morgunblaðið tók þessa mynd og ég fékk hana senda fyrir einhverjum árum síðan. Ég sagði alltaf að þetta yrði myndin mín á Facebook þegar ég yrði ólétt,\" segir Margrét Lára.

Get sparkað í vegg í laumi
,,Þetta þýðir minnst 6-9 mánaða hlé frá boltanum. Ég ætla mér að koma til baka og vonandi sem fyrst. Í þessari aðstöðu er samt erfitt að skipuleggja framtíðina of mikið. Maður veit aldrei hvað getur gerst. En draumurinn er að allt gangi vel, barnið verði heilbrigt og heilsuhraust og ég geti komið til baka og haldið atvinnumannadraumnum áfram.\"

,,Ég er bara 27 ára gömul og náði mér út úr mjög erfiðum meiðslum í sumar. Ég er rosalega hraust og mér líður vel í líkamanum. Mér finnst ég eiga nokkur ár eftir.\"

,,Þetta verða mikil viðbrigði. Það sem ég er búin að kvíða mest fyrir er að fara úr fótboltanum og félagsskapnum þar. Það er svo margt sem er í kringum þetta sem ég á eftir að sakna mjög mikið. Það verður erfitt að vera ekki í kringum þetta en ég get verið dugleg að mæta á leiki og verið heima að sparka í vegg í laumi,\" segir Margrét sem er fyrirliði íslenska landsliðsins.

Lamdi aðeins í öxlina á manninum mínum
Hvað sagði landsliðsþjálfarinn Freyr Alexandersson þegar hann heyrði fréttirnar?

,,Hann var hamingjusamur fyrir mína hönd. Hann aðeins lamdi í öxlina á manninum mínum en lét mig bara í friði.\" segir Margrét. Kærasti hennar er Einar Örn Guðmundsson handknattleiksmaður. Margrét heldur með Manchester United í enska boltanum en hann með Liverpool.

,,Ég held að barnið hljóti að taka mark á móður sinni sem er í fótbolta og vonandi áframhaldandi landsliðskona. Það hlýtur að taka mark á því frekar en einhverjum handboltakalli sem nær ekki að halda bolta á lofti oftar en tíu sinnum,\" segir Margrét kíminn varðandi hvaða liði barn hennar muni styðja.
Margrét og Sara Björk Gunnarsdóttir skoða sænskt dagblað.

Margrét og Sara Björk Gunnarsdóttir skoða sænskt dagblað.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Elvar Geir Magnússon

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.