Fotbolti.net
30.12.18 - 09:00
Ívan Guðjón Baldursson
Ítalska deildin

Hernanes til Sao Paulo (Staðfest)

Hernanes til Sao Paulo (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Brasilíska félagið Sao Paulo er búið að tryggja sér þjónustu Hernanes næstu þrjú árin og kemur hann frá kínverska félaginu Hebei China Fortune.
Hernanes er 33 ára miðjumaður sem ólst upp hjá Sao Paulo í heimalandinu. Hernanes er goðsögn hjá félaginu og reyndist hann smellpassa í ítalska boltann þegar hann var keyptur til Lazio 25 ára gamall.

Hernanes var lykilmaður í liði Lazio og lék einnig fyrir Inter og Juventus á Ítalíu áður en hann var seldur til Kína.

Hann var lánaður til Sao Paulo á síðasta tímabili og lék lykilhlutverk í að bjarga félaginu frá falli. Hann nýtur sín á heimaslóðum og segist vilja ljúka ferlinum hjá Sao Paulo.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.