30.12.18 - 06:00
Ívan Guðjón Baldursson
Karitas skrifar undir nýjan samning við Selfoss (Staðfest)

Mynd: Selfoss

Mynd: Selfoss

Karitas Tómasdóttir er búin að skrifa undir tveggja ára samning við Selfoss. Þetta eru frábærar fréttir fyrir Selfyssinga enda Karitas gríðarlega öflug þegar hún er laus frá bandaríska háskólaboltanum.
Karitas hefur ekki spilað heilt tímabil með Selfossi síðan sumarið 2014 þegar hún var aðeins 19 ára gömul. Hún útskrifast úr háskóla næsta vor og ætti því að vera liðtæk allt næsta keppnistímabil.
Karitas er öflugur miðjumaður og þótti meðal sterkustu leikmanna Pepsi-deildarinnar þrátt fyrir að hafa aðeins spilað níu leiki á síðasta tímabili.
„Ég er mjög spennt fyrir því að framlengja samninginn minn og geta loksins klárað heilt sumar í Pepsi-deildinni. Við munum klárlega stefna á að gera betur á næsta tímabili," sagði Karitas.
„Það er alltaf mikill metnaður á Selfossi og það er gott að vinna með þjálfurunum Alfreð og Óttari og öllum í kringum liðið."