30.12.18 - 12:40
Arnar Helgi Magnússon
Viktor Karl í Breiðablik (Staðfest)

Mynd: Breiðablik

Mynd: Breiðablik
Viktor Karl Einarsson er genginn til liðs við Breiðablik frá IFK Värnamo. Hann gerir þriggja ára samning við Kópavogsliðið.
Viktor er fæddur árið 1997 en hann er uppalinn í Breiðablik. Hann var einungis sextán ára þegar hann fór til AZ Alkmaar en þar lék hann með unglingaliðum félagsins.
Í sumar gekk Viktor síðan til liðs við sænska B-deildarliðið IFK Värnamo þar sem hann lék 16 leiki.
Viktor á að baki 30 leiki með U16, U17, U19 og U21 landsliðum Íslands og skoraði 5 mörk í þeim leikjum.
„Viktor Karl er fljótur og leikinn spilari. Það verður gaman að sjá þennan snjalla leikmann aftur í græna búningnum. Velkominn heim Viktor Karl Einarsson!" segir í fréttatilkynningu Breiðabliks.