31.01.19 - 23:03
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Andy King lánaður til Derby (Staðfest)

Andy King.

Mynd: Getty Images

Andy King.

Mynd: Getty Images
Miðjumaðurinn Andy King mun klára tímabilið hjá Derby í Championship-deildinni en hann hefur verið lánaður þangað frá Leicester.
Segja má að King sé herra Leicester en hann hefur verið hjá félaginu nánast samfleytt frá 2004. Hann var í láni hjá Swansea í fyrra.
Hann hefur aðeins komið við sögu í einum leik á þessu tímabili og því skiljanlegt að hann rói á önnur mið.
King spilaði 25 leiki þegar Leicester varð Englandsmeistari árið 2016.
Hann fer til Derby sem er í baráttu um að fara upp í ensku úrvalsdeildina. Liðið er sem stendur í sjötta sæti, sem er síðasta sætið sem vetir þáttökurétt í umspili um að fara upp um deild.

📝 DEAL DONE: Leicester City midfielder Andy King has joined Derby County on a 6-month loan deal. (Source: @dcfcofficial)#DeadlineDay pic.twitter.com/82uKvG4Dm8
— Deadline Day (@DeadlineDayLive) January 31, 2019