Fotbolti.net
31.01.19 - 23:27
Arnar Helgi Magnússon

Bolasie lánaður til Anderlecht (Staðfest)

Bolasie lánaður til Anderlecht (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Belgíska félagið Anderlecht hefur fengið Yannick Bolasie á láni út leiktíðina frá Everton.
Bolasie gekk í raðir Aston Villa á lánssamningi fyrir leiktíðina en honum var síðan rift um miðjan janúar.

Dean Smith, stjóri Villa, var ekki hrifinn af Bolasie og var leikmaðurinn nánást alfarið geymdur á bekknum. Bolasie sagði hann hafi ákveðið sjálfur að rifta samningnum við Villa þar sem að hann ætlaði að vinna sér inn sæti í liði Everton.

Anderlecht situr í 5. sæti belgísku úrvalsdeildarinnar þegar 23 leikir hafa verið spilaðir.

Næsti leikur liðsins er gegn Standard Liege á sunnudag og verður Bolasie gjaldgengur í þeim leik.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.