31.01.19 - 23:16
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Bruce fékk þrjá leikmenn til Sheffield Wednesday (Staðfest)

Rolando Aarons.

Mynd: Getty Images

Rolando Aarons.

Mynd: Getty Images
Það var nóg að gera á skrifstofu Sheffield Wednesday á þessum gluggadegi. Steve Bruce er mættur á svæðið og hann bætti við sig þremur leikmönnum.
Tveir þeirra koma frá Newcastle, en það eru Achraf Lazaar og Rolando Aarons. Þeir koma báðir á láni.
Lazaar er 27 ára vinstri bakvörður sem getur einnig leikið á vinstri kantinum. Hann hefur ekkert spilað með aðalliði Newcastle á þessu tímabili.
Aarons er 23 ára kantmaður sem var síðast á láni hjá Slovan Liberec í Tékklandi.
Þriðji leikmaðurinn sem Wednesday samdi við í dag er Dominic Iorfa, en hann kemur frá Wolves. Wednesday keypti hann að því er talið vera fyrir 500 þúsund pund. Iorfa er 23 ára og á að baki landsleiki fyrir enska U21 landsliðið.
Sheffield Wednesday er í 17. sæti Championship-deildarinnar.

Achraf Lazaar.

Mynd: Getty Images

Dominic Iorfa.

Mynd: Getty Images