31.01.19 - 23:06
Ívan Guðjón Baldursson
Dortmund lánar Toljan til Celtic (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Þýski bakvörðurinn Jeremy Toljan mun leika fyrir Celtic í toppbaráttu skosku deildarinnar út tímabilið.
Toljan kemur á láni frá Borussia Dortmund sem trónir á toppi þýsku deildarinnar en hann hefur ekki fengið mikið af tækifærum á tímabilinu.
Þetta er mikill liðsstyrkur fyrir Celtic og mun Toljan berjast við Svíann Mikael Lustig um byrjunarliðssæti í hægri bakverði.
Toljan er 24 ára og á 72 leiki að baki í efstu deild í Þýskalandi. Þá hefur hann spilað 36 sinnum fyrir yngri landslið Þýskalands.