31.01.19 - 22:13
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Havard Nordtveit í Fulham (Staðfest)

Nordtveit er mættur aftur í ensku úrvalsdeildina.

Mynd: Getty Images

Fulham var að fá Norðmanninn Havard Nordtveit á láni frá þýska félaginu Hoffenheim.
Hinn 28 ára gamli Nordveit getur spilað sem varnar- eða miðjumaður.
Nordveit er með reynslu úr ensku úrvalsdeildinni en hann lék áður í eitt tímabil með West Ham. Fulham vonast eflaust eftir því að það muni ganga betur hjá honum núna. Hann átti erfitt uppdráttar hjá West Ham.
„Ég er glaður að fá tækifærið að koma aftur í ensku úrvalsdeildina. Vonandi get ég hjálpað Fulham að halda sér uppi," sagði sá norski við heimasíðu Fulham.
Nordtveit fór ungur að árum til Arsenal en náði ekki að spila leik þar. Hann lék við góðan orðstír hjá Borussia Mönchengladbach frá 2011 til 2016 áður en hann fór til West Ham. Hann hefur leikið með Hoffenheim undanfarin tvö tímabil.
Fulham er í næst neðsta sæti ensku úrvalsdeildarinnar, sex stigum frá öruggu sæti.