Fotbolti.net
31.01.19 - 19:28
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Heimir nælir í Wilfried Bony (Staðfest)

Heimir nælir í Wilfried Bony (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Sóknarmaðurinn Wilfried Bony var að semja við Al Arabi í Katar. Hann gerir lánssamning fram á sumar.

Heimir Hallgrímsson er þjálfari Al Arabi.
Bony, sem er þrítugur og er frá Fílabeinsströndinni, er fyrrum leikmaður Manchester City en hann er nú á sinni annarri dvöl hjá Swansea.

Bony hefur ekki mikið spilað með Swansea á þessu tímabili en áður hafði hann misst af tíu mánuðum vegna hnémeiðsla.

Samningur Bony hjá Swansea rennur út í sumar og Al Arabi getur því samið við hann þá ef félagið kýs að gera svo.

Bony er annar leikmaðurinn sem Heimir fær í dag. Fyrr í dag samdi Al Arabi við landsliðsmann frá Íran.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.