Fotbolti.net
31.01.19 - 23:39
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Johansen, Murphy og Montero til West Brom (Staðfest)

Jacob Murphy.

Jacob Murphy.

Canon

Mynd: Getty Images

West Brom stefnir á að fara upp í ensku úrvalsdeildina og nýjan leik og hefur félagið samið við þrjá leikmenn úr úrvalsdeildinni.
Leikmennirnir eru Stefan Johansen, Jacob Murphy og Jefferson Montero en þeir koma allir á láni.

Johansen kemur á láni frá Fulham, en hann hefur leikið þar síðan 2016. Þar áður var hann hjá Celtic. Johansen er 28 ára gamall norskur landsliðsmaður og leikur hann sem miðjumaður.

Jacob Murphy er kantmaður sem kemur frá Newcastle. Hann er 23 ára, en hefur átt erfitt með spiltíma hjá Newcastle á þessari leiktíð.

Montero kemur frá Swansea, hann er einnig kantmaður. Hann er 29 ára og hefur verið á mála hjá Swansea frá 2014. Hann hefur að undanförnu leikið með Emelec í Ekvador, en tekur núna slaginn með West Brom.

West Brom er í fjórða sæti Championship-deildarinnar.


Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.