Fotbolti.net
31.01.23 - 10:32
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Cancelo verður kynntur hjá Bayern í dag

Cancelo verður kynntur hjá Bayern í dag
Canon

Mynd: EPA

Joao Cancelo er að ganga í raðir Bayern Munchen á láni frá Manchester City. Lánssamningurinn gildir út tímabilið en Bayern getur nýtt sér kaupákvæði í samningnum og fengið Cancelo alfarið í sínar raðir fyrir 61 milljón punda.
Cancelo flaug til Þýskalands í gær og klárað læknisskoðun í gær.

Hann var í lykilhlutverki fyrir HM í Katar en undanfarnar vikur hefur hlutverkið verið afskaplega takmarkað eftir að City breytti um leikkerfi.

Þá hefur verið fjallað um rifrildi milli hans og stjórans Pep Guardiola sem fékk nóg af Cancelo þegar sá portúgalski brást illa við því að vera ekki í byrjunarliðinu gegn Arsenal síðasta föstudag.

<b>Enski boltinn</b> - Óvænt skipti og slúðursögur fyrir gluggadag

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.