Birmingham 0 - 1 Blackburn
0-1 Auston Trusty ('100 , sjálfsmark)
Blackburn hafði betur gegn Birmingham í endurteknum leik í enska bikarnum í kvöld. Liðin skildu jöfn 2-2 í fyrri viðureign liðanna á laugardaginn.
Það var markalaust eftir venjulegan leiktíma en varnarmaðurinn Auston Trusty, lánsmaður frá Arsenal varð fyrir því óláni að skora sjálfsmark og tryggja Blackburn 1-0 sigur.
Blackburn heimsækir því Leicester í 16 liða úrslitunum.
Leicester rétt marði Walsall um helgina þar sem Kelechi Iheanacho skoraði eina mark leiksins.
Athugasemdir