Olympique Marseille ætlar ekki að láta miðjumanninn Matteo Guendouzi fara í dag. Fabrizio Romano greinir frá þessu á Twitter.
Guendouzi var orðaður við Aston Villa en Romano segir engar viðræður í gangi milli Marseille og enska félagsins.
Guendouzi er 23 ára gamall og býr yfir reynslu úr enska boltanum eftir dvöl sína hjá Arsenal þar sem hann spilaði 82 leiki á tveimur árum.
Hann er lykilmaður hjá Marseille og hefur spilað 7 leiki fyrir franska A-landsliðið síðustu tvö ár og fékk að fara með á HM í Katar þar sem liðsfélagar hans hrepptu silfurverðlaunin.
Hann hefur einnig verið orðaður við West Ham, Atletico Madrid og fleiri félög. Búast má við einhverjum tilboðum næsta sumar.

Olympique Marseille have no intention to let Mattéo Guendouzi leave today. No talks are taking place with Aston Villa. ???????? #OM #DeadlineDay
— Fabrizio Romano (@FabrizioRomano) January 31, 2023
Also, Clauss deal was never close with Atlético — no way for loan move and Atléti will sign Doherty from #THFC. pic.twitter.com/KqtTNmCMad
Athugasemdir