Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
banner
fimmtudagur 25. apríl
Mjólkurbikar karla
sunnudagur 21. apríl
Besta-deild karla
Besta-deild kvenna
föstudagur 19. apríl
Besta-deild karla
þriðjudagur 16. apríl
Meistarar meistaranna konur
mánudagur 15. apríl
Besta-deild karla
föstudagur 12. apríl
Besta-deild karla
þriðjudagur 9. apríl
Undankeppni EM kvenna
mánudagur 8. apríl
Besta-deild karla
föstudagur 5. apríl
Undankeppni EM kvenna
mánudagur 1. apríl
Meistarar meistaranna
sunnudagur 31. mars
Enska úrvalsdeildin
föstudagur 29. mars
Úrslitaleikur Lengjubikars kvenna
miðvikudagur 27. mars
Úrslitaleikur Lengjubikarsins
þriðjudagur 26. mars
Umspilsleikur um EM sæti
U21 karla - EM 25 undankeppni
fimmtudagur 21. mars
EM umspilið
miðvikudagur 20. mars
Lengjubikar karla - Undanúrslit
sunnudagur 10. mars
Enska úrvalsdeildin
þriðjudagur 27. febrúar
Landslið kvenna - Þjóðadeild umspil
föstudagur 23. febrúar
fimmtudagur 1. febrúar
Úrslitaleikur Reykjavíkurmótsins
fimmtudagur 18. janúar
Vináttulandsleikur
sunnudagur 14. janúar
fimmtudagur 14. desember
Sambandsdeild UEFA
föstudagur 8. desember
Úrslitaleikur Bose-mótsins
þriðjudagur 5. desember
Þjóðadeild kvenna
mánudagur 4. desember
Umspil fyrir HM U20
föstudagur 1. desember
Þjóðadeild kvenna
fimmtudagur 30. nóvember
Sambandsdeild UEFA
sunnudagur 19. nóvember
Undankeppni EM
fimmtudagur 9. nóvember
Sambandsdeild UEFA
þriðjudagur 31. október
Landslið kvenna - Þjóðadeild
föstudagur 27. október
fimmtudagur 26. október
Sambandsdeild UEFA
miðvikudagur 18. október
Forkeppni Meistaradeildar kvenna
þriðjudagur 17. október
Undankeppni EM
föstudagur 13. október
þriðjudagur 10. október
Meistaradeild kvenna
sunnudagur 8. október
Besta-deild karla - Efri hluti
fimmtudagur 5. október
Sambandsdeild UEFA
mánudagur 2. október
Besta-deild karla - Efri hluti
sunnudagur 1. október
Besta-deild karla - Neðri hluti
Besta-deild karla - Efri hluti
Besta-deild karla - Neðri hluti
föstudagur 29. september
Fótbolti.net bikarinn
þriðjudagur 26. september
Landslið kvenna - Þjóðadeild
mánudagur 25. september
Besta-deild karla - Efri hluti
sunnudagur 24. september
Besta-deild karla - Neðri hluti
Besta-deild karla - Efri hluti
Besta-deild karla - Neðri hluti
Lengjudeild karla - Umspil
laugardagur 23. september
Besta-deild karla - Neðri hluti
Fótbolti.net bikarinn
föstudagur 22. september
Landslið kvenna - Þjóðadeild
fimmtudagur 21. september
Sambandsdeildin
miðvikudagur 20. september
Besta-deild karla - Efri hluti
Lengjudeild karla - Umspil
Besta-deild karla - Neðri hluti
mánudagur 18. september
föstudagur 19. apríl
Super League - Women
Brighton W - Everton W - 18:00
Division 1 - Women
Paris W 0 - 1 Saint-Etienne W
Bundesligan
Eintracht Frankfurt - Augsburg - 18:30
Bundesliga - Women
RB Leipzig W 0 - 0 Bayer W
Serie A
Cagliari - Juventus - 18:45
Genoa 0 - 0 Lazio
Toppserien - Women
Lyn W 0 - 0 Lillestrom W
Úrvalsdeildin
FK Krasnodar 0 - 0 Fakel
La Liga
Athletic - Granada CF - 19:00
Damallsvenskan - Women
Norrkoping W 0 - 0 Djurgarden W
Elitettan - Women
Umea W 0 - 0 Sunnana W
fös 31.mar 2023 20:00 Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Magazine image

Spá Fótbolta.net - 7. sæti: FH

Sérfræðingar Fótbolta.net spá því að FH muni enda í sjöunda sæti í Bestu deildinni í sumar. Álitsgjafar spá í deildina en þeir raða liðunum upp í röð og það lið sem er í efsta sæti fær 12 stig, annað sæti 11 og svo koll af kolli niður í tólfta sæti sem gefur eitt stig. FH endar efst í neðri hlutanum ef spáin rætist, en efst var liðinu spáð fimmta sæti og neðst var liðinu spáð tíunda sæti.

Spáin:
1. ?
2. ?
3. ?
4. ?
5. ?
6. ?
7. FH, 72 stig
8. ÍBV, 66 stig
9. Fram, 47 stig
10. Keflavík, 32 stig
11. Fylkir, 26 stig
12. HK, 17 stig

Um liðið: Sigursælasta félagið á þessari öld var með liðið sitt í fallsæti eftir 22 umferðir á síðasta tímabili. Það náðist að rífa sig upp um eitt sæti í neðri hluta umspilinu og tryggði með því sæti sitt í deildinni. Síðasta tímabil er eitthvað sem FH-ingar vilja gleyma en á sama tíma læra af. Rót var á þjálfaramálunum í fyrra en vonir standa til þess að nýr þjálfari nái að sigla skútunni upp um nokkur sæti, upp í efri hlutann.



Þjálfarinn - Heimir Guðjónsson: Sigursælasti þjálfarinn á Íslandi í dag, sá titlaóði, er mættur aftur í Hafnarfjörðinn eftir fimm ára útlegð í firðinum. Hann náði í titil á Hlíðarenda og tvo titla í Færeyjum frá því hann var látinn fara frá FH eftir tímabilið 2017. Móttökurnar sem Heimir fékk þegar hann sneri aftur voru frábærar og ljóst að FH-ingar eru ánægðir með að fá Heimi heim.


Heimir Guðjónsson.

Fótbolti.net fær sérfræðingana Einar Guðnason og Ingólf Sigurðsson til að rýna í styrkleika, veikleika og margt annað hjá liðunum sem spila í Bestu deildinni í sumar. Þeir sjá þó ekki að skrifa um leikvöllinn hér að neðan. Ingó, einn af sérfræðingum Innkastsins, fer yfir það helsta hjá FH.

Styrkleikar: Erfitt að meta þá á þessum tímapunkti, miklar breytingar orðið í vetur, nýir þjálfarar og töluverðar breytingar á hópnum. Þeir eiga nokkra spennandi unga leikmenn og eru ennþá með leikmenn, FH-inga, sem búa yfir gæðum. Miðja með Birni Daníel og Loga Hrafni ætti að vera einn af styrkleikum liðsins.

Veikleikar: Aftur breytingarnar óvíst hvernig mun rætast úr þeim þegar í alvöruna er komið, mikil umræða í kringum félagið og hörmungarárið í fyrra eins og draugur yfir félaginu. Það er ekkert auðvelt að spila undir pressunni sem fylgir því að þurfa gera betur en í fyrra, mega ekki gera sömu mistökin inn á vellinum. FH er ekki með mikla breidd af gæða leikmönnum.


Miklar væntingar gerðar til U19 landsliðsmannsins Loga Hrafns.

Spurningarnar: Hvernig Heimir Guðjóns kemur aftur inn í þetta, eftir að hafa verið frá félaginu í nokkur ár. Líka hvernig mun takast að búa til gott byrjunarlið, því það eru töluverðar breytingar á öllum hrygg liðsins.

Þrír lykilmenn: Björn Daniel Sverrisson hefur sannað sig sem frábær miðjumaður. Eggert Gunnþór Jónsson er algjör lykilmaður í varnarleiknum, frábær leikmaður. Sindri Kristinn Ólafsson þarf þá að koma virkilega sterkur í FH ef vel á að ganga.


Björn Daníel er algjör lykilmaður í liði FH.

Leikmaður sem á að fylgjast með: Kjartan Kári Halldórsson. Hann kemur á láni frá Haugesund í Noregi. Hann var frábær með Gróttu í fyrra en tekur nú sitt fyrsta heila tímabil í efstu deild. Það verður gaman að fylgjast með honum.


Kjartan Kári var markahæstur í Lengjudeildinni í fyrra.

Völlurinn: Einn af þremur grasvöllum í deildinni og sá völlur sem leikmönnum finnst skemmtilegast að koma á. Alltaf upplifun að koma í Krikann og hann þarf að vera vígi í sumar ef liðið ætlar að ná sínum markmiðum. FH náði í nítján stig á heimavelli í fyrra, rúmlega þrefalt meira en liðið fékk á útivelli (6).


Kaplakrikavöllur.

Komnir
Dani Hatakka frá Keflavík
Eetu Mömmö á láni frá Lecce
Gyrðir Hrafn Guðbrandsson frá Leikni
Kjartan Henry Finnbogason frá KR
Kjartan Kári Halldórsson á láni frá Haugesund
Sindri Kristinn Ólafsson frá Keflavík

Farnir
Atli Gunnar Guðmundsson í KFK
Baldur Logi Guðlaugsson í Stjörnuna
Guðmundur Kristjánsson í Stjörnuna
Gunnar Nielsen
Kristinn Freyr Sigurðsson í Val
Matthías Vilhjálmsson í Víking

Dómur Ingólfs fyrir gluggann (1-10): 6


Sindri Kristinn þarf að eiga gott tímabil

Líklegt byrjunarlið


Leikmannalisti:
1. Sindri Kristinn Ólafsson
12. Heiðar Máni Hermannsson
24. Daði Freyr Arnarsson
2. Ástbjörn Þórðarson
3. Haraldur Einar Ásgrímsson
4. Ólafur Guðmundsson
5. Gyrðir Hrafn Guðbrandsson
6. Eggert Gunnþór Jónsson
7. Steven Lennon
8. Finnur Orri Margeirsson
9. Kjartan Henry Finnbogason
10. Björn Daníel Sverrisson
11. Davíð Snær Jóhannsson
18. Kjartan Kári Halldórsson
19. Eetu Mömmö
22. Oliver Heiðarsson
23. Máni Austmann
25. Þorri Stefán Þorbjörnsson
26. Dani Hatakka
27. Jóhann Ægir Arnarsson
29. Vuk Oskar Dimitrijevic
33. Úlfur Ágúst Björnsson
34. Logi Hrafn Róbertsson
34. Róbert Thor Valdimarsson
38. Arngrímur Guðmundsson
39. Baldur Kári Helgason
41. Bjarki Steinsen

Fyrstu fimm leikir FH:
10. apríl Fram - FH (Framvöllur)
15. apríl FH - Stjarnan (Kaplakrikavöllur)
24. apríl Fylkir - FH (Würth völlurinn)
28. apríl FH - KR (Kaplakrikavöllur)
3. maí KA - FH (Greifavöllurinn)

Í besta falli og versta falli: Í besta falli verður það sjöunda sætið sem liðinu er spáð. FH-ingar geta alveg lent í fallbaráttu og endað í 10. sæti.

Í fyrramálið birtist FH hlaðvarp hér á síðunni. Endilega fylgist með því.

Spámennirnir: Aksentije Milisic, Arnar Daði Arnarsson, Arnar Laufdal, Brynjar Ingi Erluson, Elvar Geir Magnússon, Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson, Hafliði Breiðfjörð, Ingólfur Sigurðsson, Jóhann Þór Hólmgrímsson, Sverrir Örn Einarsson, Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke og Tómas Þór Þórðarson.
Athugasemdir
banner
banner
banner