Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   fös 31. mars 2023 17:00
Elvar Geir Magnússon
Potter hrósar hugarfari Mount
Mason Mount.
Mason Mount.
Mynd: Getty Images
Graham Potter, stjóri Chelsea, hefur hrósað Mason Mount og segir hann sannan atvinnumann. Mount hefur verið orðaður við Bayern München.

Thomas Tuchel, fyrrum stjóri Chelsea, var á dögunum ráðinn til Bayern.

Chelsea er sagt vera að biðja um 70 milljónir punda fyrir hinn 24 ára Mount sem hefur aðeins byrjað einn af síðustu átta leikjum Chelsea. Þá hefur hann ekki skorað á árinu 2023.

„Þetta hefur verið erfitt fyrir hann. Hvernig hann hefur hegðað sér hefur verið frábært. Hann hefur verið að glíma við smávægileg böggandi meiðsli og svo öll þessi umræða. Hann er alvöru atvinnumaður og góður gaur," segir Potter.

„Stundum ganga hlutirnir ekki fyrir sér eins og þú vilt en þú þarft að bregðast rétt við. Hann hefur algjörlega gert það."

Mount missti af síðasta landsleikjaglugga með Englandi vegna meiðsla en gæti spilað með Chelsea gegn Aston Villa á morgun.
Athugasemdir
banner
banner
banner