Leao og Bowen orðaðir við Man Utd - Alisson til Juventus
Rúnar Páll: Höfum verið betra liðið í flestum þessum leikjum
Daniel Badu: Misstum haus og þeir refsuðu
Nenad: Mjög kærkomið
Ósáttur Davíð Smári: Held að það sé best að halda kjafti
Heimir Guðjóns ánægður: Frábært veður, frábær völlur og frábært vallarstæði
Gunnar Heiðar: Við urðum bara pinkulitlir í okkur
Aðstoðarþjálfari ÍR: Fannst við betra liðið allan tímann
Sterkastur í 8. umferð - Refsuðum þeim út um allan völl
Venni: Þetta var hræðileg árás á Aron Snæ
Maggi: Vonandi fáum við fljótlega stúku með þaki
Freyr Sig: Það er ljúft að vera í Fram í dag
Sölvi Geir mjög ánægður: Hefðum auðveldlega getað unnið stærra
Rúnar Kristins: Erfitt fyrir mig að vera með hann á bekknum
Ármann Ingi bjóst við láni en hefur sýnt að hann geti spilað í Bestu
Jökull hefur áhyggjur af stöðunni: Það væri skrýtið að gera það ekki
„Erfitt að fá á sig þrjú mörk og vinna en við gerðum það samt“
Jói Kalli: Rauða spjaldið gjörbreytir leiknum
Hólmar Örn: Hefur verið mikið vopn hjá okkur
Óskar segir liðið vera með svarta beltið í að tapa - „Eigum við að hýða okkur með belti?“
Oliver súr: Fyrsti leikurinn þar sem mér líður mjög vel
   þri 31. mars 2026 20:24
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Arnar vonsvikinn: Rosalega mikill klaufagangur
Eimskip
Arnar Gunnlaugsson, landsliðsþjálfari, á hliðarlínunni í dag.
Arnar Gunnlaugsson, landsliðsþjálfari, á hliðarlínunni í dag.
Mynd: EPA
„Það eru vonbrigði að missa aftur niður forskot. Þetta var verra en á móti Kanada. Leikstjórnin okkar síðasta korterið var slök og þeir gengu á lagið. Það er þreytandi að þurfa alltaf að tala um að læra af hlutum, þú lærir alltaf af mistökunum, en þetta var rosalega 'soft' mark sem við fengum á okkur," sagði Arnar Gunnlaugsson, landsliðsþjálfari, eftir 1-1 jafntefli gegn Haítí í vináttulandsleik í kvöld.

Lestu um leikinn: Haítí 1 -  1 Ísland

Það hefði margt mátt fara betur í þessum leik.

„Við hefðum mátt nýta kantana okkar miklu betur, það var gapandi svæði í fyrri hálfleik sem við nýttum í markinu okkar í seinni hálfleik. Það hefðu mátt vera fleiri færi, við fengum voðalega fá færi. Stundum fannst mér spilið of hægt. Fyrsta orðið er bara vonbrigði," sagði Arnar.

„Þessi landsliðsfótboli er bara mistakafótbolti. Við höfum fengið á okkur 13 mörk í síðustu átta leikjum og ef við greinum þau þá er þetta rosalega mikill klaufagangur. Því miður."

„Ef við náum ekki að útrýma því, þá komumst við hvorki lönd né leið," sagði Arnar.

Allt viðtalið má sjá í spilaranum hér að ofan.
Slapp
banner