31.03.26 - 22:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Blikaliðið eitt af þremur bestu og FH verði „mjög sterkar"

Úr leik FH og Breiðabliks síðasta sumar.

Mynd: Fótbolti.net - J.L.

Það eru núna aðeins rúmar þrjár vikur í það að Besta deild kvenna fari af stað.
Þorsteinn Halldórsson, landsliðsþjálfari Íslands, var spurður út í deildina í viðtali á Fótbolta.net á dögunum.

„Nýja meistara? Blikaliðið er enn eitt af þremur bestu liðunum held ég," sagði Steini.
„Svo eru þetta Valur, Víkingur og FH. Eins og ég sé þetta núna, og það sem ég hef séð, þá lítur þetta þannig út. Ekkert ósvipað og þetta var í fyrra."
„Svo verður áhugavert að sjá þetta. Það eru nýir menn í brúnni hjá Breiðabliki og miklar breytingar. Það hefur verið stígandi hjá þeim undanfarið. Ég held að FH verði mjög sterkar í sumar," sagði landsliðsþjálfarinn jafnframt.
Hægt er að horfa á viðtalið við hann í heild sinni í spilaranum hér fyrir neðan.