Fotbolti.net
31.03.26 - 22:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Bruno Fernandes styður hugmyndina um Tonali

Bruno Fernandes.

Bruno Fernandes.

Canon

Mynd: EPA

Sando Tonali, miðjumaður Newcastle, hefur verið sterklega orðaður við Manchester United að undanförnu.

Hann er talinn eitt helsta skotmark United fyrir sumarið en Daily Mail segir að Bruno Fernandes, fyrirliði Man Utd, sé mjög spenntur fyrir þessu og hafi lagt fram sinn stuðning við þessa hugmynd.
Fram kemur í fréttinni að Fernandes hafi verið hrifinn af Tonali frá því hann kom í ensku úrvalsdeildina.

Tonali er sagður vera efsti kostur United til að styrkja miðjuna í sumar, á undan leikmönnum á borð við Elliot Anderson hjá Nottingham Forest og Carlos Baleba hjá Brighton.

Tonali, sem er 25 ára, gekk í raðir Newcastle árið 2023 frá AC Milan. Hann á að baki 31 landsleik fyrir Ítalíu.
Sandro Tonali.

Sandro Tonali.

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.