Fotbolti.net
31.03.26 - 14:44
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Munnlegt samkomulag í höfn - Verður sá þriðji launahæsti

Munnlegt samkomulag í höfn - Verður sá þriðji launahæsti
Canon

Mynd: EPA

Það styttist í að Roberto de Zerbi verði tilkynntur sem nýr stjóri Tottenham. Talað er um í ítölskum og enskum fjölmiðlum að munnlegt samkomulag sé í höfn og De Zerbi fái fimm ára samning.

De Zerbi er efsta nafnið á óskalistanum hjá Tottenham sem var í leit að manni til að taka við af Igor Tudor. Fjallað var um að De Zerbi vildi helst taka við í sumar en stjórnarmenn Tottenham virðast hafa náð að sannfæra hann um að koma strax inn og stýra liðinu í síðustu sjö leikjum ensku úrvalsdeildarinnar.
Tottenham er í mikilli fallhætti, stigi fyrir ofan West Ham sem situr í fallsæti. Liðið hefur ekki unnið í síðustu 13 leikjum í úrvalsdeildinni.

Mirror segir að De Zerbi fái á bilinu 12-15 milljónir punda í árslaun sem myndi gera hann að þriðja launahæsta stjóra deildarinnar á eftir Pep Guardiola (20m/p) og Mikel Arteta (15m/p). De Zerbi er þá sagður fá væna summu ef hann heldur liðinu uppi í úrvalsdeildinni.

De Zerbi hætti hjá Marseille í febrúar og var áður stjóri Brighton í ensku úrvalsdeildinni og gerði mjög fína hluti með liðið.

Tudor var látinn fara á sunnudag eftir einungis 44 daga í starfi. Thomas Frank byrjaði tímabilið sem stjóri Tottenham, Tudor tók við af honum og nú virðist De Zerbi vera næstur inn hjá félaginu.

Næsti leikur Tottenham verður gegn Sunderland á útivelli 12. apríl.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.