Gylfi Þór Sigurðsson heldur áfram að bæta við markafjölda sinn hjá íslenska landsliðinu. Gylfi var að koma Íslandi yfir gegn Haíti í vináttulandsleik.
Hann er núna búinn að skora 28 mörk fyrir íslenska landsliðið - meira en nokkur annar - og er þar með kominn tveimur mörkum fram úr Kolbeini Sigþórssyni og Eiði Smára Guðjohnsen. Gylfi hefur skorað þessi 28 mörk í 85 landsleikjum.

Lestu um leikinn: Haítí 1 - 1 Ísland
„Logi Tómasson kemur upp vinstra megin og tíar boltann snyrtilega upp fyrir Gylfa sem er aleinn í teignum og klárar með skoti í fyrsta!" skrifaði Elvar Geir Magnússon í beinni textalýsingu frá Kanada þegar Gylfi skoraði.
„Vel gert hjá Stefáni Teiti í aðdragandanum, hann átti langa og hnitmiðaða sendingu á Loga."