KSÍ greindi frá því fyrir helgi að Íslandsmót yngri flokka fóru af stað á föstudaginn með leikjum í 3. 4. og 5. flokki.
Einnig voru leikir í gær og verða enn fleiri leikir í dag og áfram alla næstu viku.
Guðjón Guðmundsson, einnig þekktur sem Gaupi, hefur verið að taka upp þætti um knattspyrnumót yngri flokka og verður næsti þáttur sýndur á föstudaginn á Stöð 2 Sport.
Gaupi hefur unnið að þáttunum í mörg ár og var hann sæmdur gullpenna KSÍ fyrir þættina í febrúar 2016.
Hrós fær @gaupinn og hans fólk fyrir þætti sína um knattspyrnumót yngri flokka. Gaupinn var að sjálfsögðu mættur á knattspyrnuhátíð @VIStryggingar og Þróttar í morgun að taka upp efni sem verður sýnt á föstudag á @St2Sport 👏 👏 👏#Lifi#VISMOT2020 pic.twitter.com/j3b2Lf5WGF
— Þróttur (@throtturrvk) May 30, 2020
Athugasemdir