Í dönsku 1. deildinn tók topplið Vejle á móti Naestved, sem var í næstneðsta sæti deildarinnar.
Kjartan Henry Finnbogagson var í byrjunarliði Vejle og lék allan leikinn.
Kjartan Henry Finnbogagson var í byrjunarliði Vejle og lék allan leikinn.
Gestirnir komust yfir með marki á þriðju mínútu en Lucas Jensen jafnaði á tíundu mínútu. Mörkin urðu ekki fleiri og er Vejle með sjö stiga forskot á Viborg á toppi deildarinnar.
Vejle 1 -1 Naestved
Í Póllandi er hálfleikur í leik Cracovia og Jagiellonia. Böðvar Böðvarsson, Böddi löpp, er ekki í leikmannahópi Jagiellonia. Í samtali við Fótbolta.net sagði Böðvar að það hafi komið smá bakslag hjá sér fyrir um tveimur vikum en hann vonaðist til að geta hafið æfingar með hefðbundnum hætti á morgun.
Athugasemdir