Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mán 31. maí 2021 06:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Bestur í 3. deild: Mun reynast drjúgur á þessu tímabili
Stefan Spasic.
Stefan Spasic.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Stefan Spasic er leikmaður 3. umferðar í 3. deild að mati hlaðvarpsþáttarins Ástríðunnar.

Spasic átti góðan leik þegar Höttur/Huginn vann 2-1 sigur á Einherja á heimavelli.

„Hann skoraði og tók sigur á heimavelli," sagði Sverrir Mar Smárason.

„Hann var virkilega 'solid' í vörninni og skoraði gott mark. Hann reynast þeim mjög drjúgur á þessu tímabili."

Spasic gekk aftur í raðir Hött/Hugins fyrir þetta tímabil eftir að hafa leikið með Víði Garði síðustu ár. Hann er 28 ára gamall varnarmaður frá Serbíu sem kom fyrst hingað til lands 2013.

Hægt er að hlusta á Ástríðuna í heild sinni hér að neðan.

Sjá einnig:
Bestir í fyrstu tveimur umferðunum í 3. deild
Ástríðan - Uppbótartíminn reyndist mönnum erfiður
Athugasemdir
banner
banner