31.07.02 - 00:00
Hafliði Breiðfjörð
Arnar samdi við Dundee United.(Staðfest)
Arnar Gunnlaugsson skrifaði í gær undir tveggja ára samnig við Dundee United. Hann hafði áður gert samning við KR um að spila með þeim til loka tímabilssins hér heima ef honum byðist ekki samningur erlendis en þegar áhugi Dundee United varð ljós var fallið frá þeim áætlunum. Eftir góða frammistöðu í tveimur æfingaleikjum með félaginu ákvað félagið að bjóða honum samning en hann var félagsslaus síðan síðasta tímabili lauk í Englandi. ,,Ég hreyfst af honum, og hef alltaf talið að hann gæti orðið góður leikmaður fyrir félagið. Hann stóð sig vel í æfingaleikjunum með okkur. Ég vissi allt um hann áður en hann kom, en vildi aðeins sjá hann og athuga í hvaða formi hann væri." sagði Alan Smith stjóri félagssins. Ágætis líkur eru á því að Arnar verði í liðinu sem mætir Partick Thistle á föstudag í fyrsta leiknum í skosku deildinni. Arnar er hér á landi þessa stundina en mun fara utan á fimmtudag. Hann segir að Sigurður Jónsson þjálfari FH of fyrrverandi leikmaður Dundee United hafi sannfært sig um að fara til félagssins. ,,Ég hringdi í Sigga og spurði hann út í staðinn. Hann sagði mér að þetta væri góður staður og að honum hafi líkað bæði árin sem hann var hjá félaginu nokkuð vel. Það lokahlutinn í ákvörðuninni um að fara til félagssins. Þegar maður veit álit samlanda síns sem maður tekur mark hjálpar það mikið" sagði Arnar.
