Fotbolti.net
31.07.12 - 21:46
Magnús Már Einarsson

Hörður Sveinsson í Keflavík (Staðfest)

Hörður Sveinsson.

Hörður Sveinsson.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Framherjinn Hörður Sveinsson hefur gengið til liðs við sitt gamla félag Keflavík en þetta staðfesti Zoran Daníel Ljubicic þjálfari liðsins í samtali við Fótbolta.net í kvöld.

Hörður kemur til Keflavíkur á lánssamningi frá Val en samningurinn gildir út tímabilið.
,,Hann verður með okkur út tímabilið og við sjáum síðan til hvað verður,\" sagði Zoran Daníel við Fótbolta.net.

,,Þetta er góður leikmaður og það er alltaf gaman að fá gamla heimamenn aftur heim.\"

Hörður er uppalinn Keflavíkur og hefur leikið með félaginu lengst af á sínum ferli. Árið 2010 gekk hann í raðir Vals en þar hefur hann ekki náð að finna sig.

Í fyrra skoraði Hörður einungis eitt mark í 18 leikjum í Pepsi-deildinni en í ár hefur hann skorað þrjú mörk í þrettán deildar og bikarleikjum.

Auk þess að leika með Keflavík og Val þá var þessi 29 ára gamli leikmaður á mála hjá Silkeborg í Danmörku frá 2006-2008.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.