31.07.17 - 21:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Alexander Magnússon heim í Njarðvík (Staðfest)

Alexander hefur lítið spilað undanfarin ár vegna meiðsla.

Mynd: Grindavík-Fram

Alexander Magnússon hefur fengið félagsskipti í Njarðvík.
Alexander kemur til Njarðvíkur frá nágrönnunum í Keflavík.

Alexander er uppalinn í Njarðvík. Hann spilaði þar til 2009, en þá fór hann til Grindavíkur. Hann fór svo í Keflavík sumarið 2015, en hann hefur lítið spilað undanfarin ár vegna meiðsla.
Hann spilaði nokkra leiki með Þrótti Vogum síðasta sumar, en hann hefur ekkert spilað þetta sumarið.
Hann mun nú klára tímabilið með Njarðvík í 2. deild karla.
Njarðvík er sem stendur á toppnum í 2. deild karla með 30 stig. Liðið stefnir að því að spila í Inkasso-deildinni á næsta ári.