Fotbolti.net
31.07.17 - 15:50
Magnús Már Einarsson

Norskur miðjumaður í Fjölni á láni (Staðfest)

Norskur miðjumaður í Fjölni á láni (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fjölnismenn hafa fengið Fredrik Michalsen, 21 árs gamlan miðjumann, á láni frá Tromsö út tímabilið.

Fredrik spilaði sex leiki í norsku úrvalsdeildinni í fyrra en hann hefur ekkert komið við sögu í ár.
Fjölnir mætir Breiðabliki í Pepsi-deildinni í kvöld en Fredrik verður ekki kominn með leikheimild í tæka tíð fyrir þann leik.

Fyrsti leikur hans með Fjölni verður því gegn KA í næstu viku.

Tromsö og Fjölnir hafa átt í góðu sambandi síðan Aron Sigurðarson var seldur til norska félagsins í fyrra.

Ungir Fjölnismenn hafa farið út til Noregs að æfa með Tromsö og nú hefur Grafarvogsfélagið fengið leikmann á láni þaðan.

Við bjóðum Fredrik Michalsen (21 árs miðjumaður) velkominn í Grafarvoginn frá @TromsoIL á láni út tímabilið #gluggadagur #fotboltinet

— Fjölnir FC (@Fjolnir_FC) July 31, 2017

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.