Fotbolti.net
31.07.17 - 11:00
Magnús Már Einarsson

Fjölnir kallar Ísak til baka úr láni (Staðfest)

Ísak Atli Kristjánsson fer í tæklingu í leik með Leikni í sumar.

Ísak Atli Kristjánsson fer í tæklingu í leik með Leikni í sumar.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fjölnir hefur kallað varnarmanninn Ísak Atla Kristjánsson til baka úr láni frá Leikni R.
Ísak Atli er fæddur árið 1999 en hann hefur leikið ellefu leiki í Inkasso-deildinni og Borgunarbikarnum í sumar.

Hann spilaði meðal annars allan leikinn í 1-0 tapi Leiknis gegn FH í undanúrslitum bikarsins á laugardaginn.

Fjölnir hefur einnig fengið kantmanninn Ísak Óla Helgason á láni frá HK út tímabilið.

Ísak Óli er fæddur árið 1998 og því ennþá á elsta ári í 2. flokki. Hann skoraði í fyrra eitt mark í sjö leikjum í Inkasso-deildinni með HK en hann hefur ekkert leikið með meistaraflokki HK í sumar.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.