Fotbolti.net
31.07.17 - 20:04
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Greg Conrad í Tindastól (Staðfest)

Greg Conrad í Tindastól (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Tindastóll hefur fengið framherjann Greg Conrad til sín frá Aftureldingu, en þetta var staðfest í dag.

Conrad kemur til með að fylla skarðið sem Kenneth Hogg skilur eftir sig hjá Tindastóli.

Hogg hafði skorað níu mörk í 2. deildinni fyrir Tindastól áður en hann samdi við Njarðvík á dögunum.
Nú hefur Tindastóll fengið sóknarmann í stað hans.

Conrad kemur eins og áður segir frá Aftureldingu, en þangað kom hann í vor frá Bandaríkjunum.

Hann hefur spilað fimm leiki með Aftureldingu í 2. deildinni í sumar og í þeim leikjum hefur hann skorað eitt mark.

Tindastóll er í 10. sæti 2. deildar karla.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.