Fotbolti.net
31.07.17 - 22:35
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Loic Ondo í Gróttu (Staðfest)

Loic Ondo og Sölvi Snær Magnússon, formaður knattspyrnudeildar Gróttu.

Loic Ondo og Sölvi Snær Magnússon, formaður knattspyrnudeildar Gróttu.

Canon

Mynd: Knattspyrnudeild Gróttu

Grótta hefur fengið varnarmanninn Loic Cedric Mbang Ondo í sínar raðir, en þetta var staðfest í kvöld.

Ondo spilaði með Fjarðabyggð á síðasta tímabili og á fyrri hluta tímabilsins sem nú stendur yfir.

Hann hefur leikið 14 leiki með Fjarðabyggð í deild og bikar í sumar.
Ondo kom fyrst til Íslands árið 2010 þegar hann samdi við Grindavík en eldri bróðir hans, GIlles Mbang Ondo raðaði inn mörkum þar á sínum tíma. Gilles Mbang spilar í dag með Vestra.

Loic hefur einnig spilað með BÍ/Bolungarvík (nú Vestri) hér á landi.

Samtals hefur hann spilað 150 leiki hér á landi og skorað átta mörk.

Hann mun nú spila seinni hlutann á þessu tímabili með Gróttu, sem er í næst neðsta sæti Inkasso-deildarinnar með átta stig.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.