31.07.17 - 18:41
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Morten Levinsen í Fjarðabyggð (Staðfest)

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

Fjarðabyggð hefur styrkt sig fyrir botnbaráttuna í 2. deild karla.
Hinn danski Morten Levinsen er kominn til félagsins, en þetta kemur fram á vefsíðu KSÍ.
Levinsen er 22 ára gamall miðjumaður sem var síðast á mála hjá Brönshöj í heimalandi sínu, Danmörku.

Hann er þriðji leikmaðurinn sem Fjarðabyggð fær til sín í þessum félagsskiptaglugga.
Áður hafði Hafsteinn Gísli Valdimarsson komið á láni frá ÍBV og þá samdi Spánverjinn Enrique Ramiresz Rivas einnig.
Fjarðabyggð er sem stendur í næst neðsta sæti 2. deildar með 14 stig að 14 leikjum loknum.