Fotbolti.net
31.07.17 - 18:30
Bergur Tareq Tamimi

Stjarnan kallar Kolbrúnu Tinnu til baka (Staðfest)

Stjarnan kallar Kolbrúnu Tinnu til baka (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Einar Ásgeirsson

Kvennaboltinn
Stjarnan var að fá miðvörðinn, Kolbrúnu Tinnu, aftur til félagsins eftir að hún hafði verið lánuð til Hauka í maí síðastliðinn.
Kolbrún Tinna kom til Stjörnunnar árið 2015 og spilaði sinn fyrsta leik með meistaraflokki vorið 2016 en var þó frá vegna meiðsla megnið af tímabilinu. Félagið lánaði hana í maí til Hauka enda hafði hún ekki fengið að spila mikið hjá liðinu.

En í dag ákvað Stjarnan skyndilega á fá hana aftur til sín.

Félagið taldi sig ekki hafa nægilega stóran hóp. Liðið er enn í bikarkeppninni og þar sem það styttist í forkeppni meistaradeildarinnar má eiga von á miklu leikjaálagi hjá Stjörnuliðinu.

Þessi 17 ára leikmaður spilaði með U17 ára landsliðinu og er uppalin hjá Fjölni.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.