Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
banner
   lau 31. júlí 2021 16:38
Brynjar Ingi Erluson
Jimenez skoraði fyrir Wolves - Öruggur sigur hjá Villa
Raul Jimenez gat fagnað í dag
Raul Jimenez gat fagnað í dag
Mynd: Heimasíða Wolves
Átta ensk úrvalsdeildarfélög spiluðu æfingaleiki í dag en Aston Villa, Burnley og West Ham unnu ölll. Wolves gerði jafntefli og þá tapaði Leeds 3-2 fyrir Real Betis.sig

Patrick Bamford og Mateusz Klich skoruðu mörkin fyrir Leeds í tapi fyrir Betis. Leeds hefur aðeins unnið einn æfingaleik á undirbúningstímabilinu en liðið á tvo leiki eftir gegn Ajax og Villarreal áður en tímabilið hefst.

Wolves gerði 1-1 jafntefli við Stoke. Mexíkóski framherjinn Raul Jimene skoraði mark Wolves og fyrsta mark hans síðan hann kom til baka eftir höfuðmeiðsli.

Jóhann Berg Guðmundsson spilaði klukkutíma er Burnley lagði Tranmere Rovers 2-1.

Aston Villa lagði Bristol City 3-0. Jaden Philogene-Bidace, Ezri Konsa og Ollie Watkins með mörkin.

Said Benrahma skoraði eina markið er West Ham vann Brentford í úrvalsdeildarslag. Brighton lagði þá Luton Town 3-1. Aaron Connolly, Enock Mwepu og Percy Tau skoruðu fyrir Brighton. Patrik Sigurður Gunnarsson spilaði fyrri hálfleikinn fyrir Brentford.

Patson Daka skoraði fyrsta mark sitt fyrir Leicester í 3-3 jafntefli gegn QPR. Kiernan Dewsbury-Hall og Kelechi Iheanacho komust einnig á blað.

Crystal Palace skoraði einnig þrjú mörk í 3-1 sigri á Reading. Jean-Phillippe Mateta, Jordan Ayew og Scott Banks skoruðu. Palace spilaði manni færri í klukkutíma eftir að Cheikhou Kouytae fékk að líta rauða spjaldið.


Athugasemdir
banner
banner
banner