Fotbolti.net
31.08.02 - 00:00
Hafliði Breiðfjörð

Ronaldo er farinn til Real Madrid!!!!!!! (staðfest)

Já þau er orðin að veruleika, stóru félagsskiptin sem beðið hefur verið eftir í allt sumar voru lokssins samþykkt rétt í þessu, innan við tveimur klukkustundum áður en frestur til að tilkynna félagsskipti rennur út. Ronaldo er genginn til liðs við Real Madrid.
Kaupverð er talið vera á bilinu 22-28,5 milljónir punda og verður greitt á nokkrum árum. Um leið og Inter Milan tilkynnti þetta tilkynntu þeir að kaup félagssins á Hernan Crespo frá Lazio hafi verið samþykkt og mun hann taka stöðu Ronaldo hjá liðinu. (samt ekki á sjúkrabekknum :)) Kaupverðið á Crespo ku vera 15 milljónir punda ásamt því að framherjinn Corradi fylgir með í kaupunum.



Athygli vekur að Fernando Morientes verður áfram hjá Real en talið var að hann yrði hluti af kaupverði, eða hann yrði seldur til Barcelona til að félagið fengi pening til að borga Ronaldo. Samningaviðræðum við Barcelona var hinsvegar slitið fyrr í dag auk þess sem Inter vildi frekar kaupa Crespo sem eftirmann Ronaldo þannig að Morientes fer hvergi.



Í kaupsamningum á Ronaldo er svo klausa sem segir að Inter fái frest fram í desember til að velja sér einhvern leikmann Real Madrid sem líklega yrði að vera metinn á eitthvað í kringum 6,5 milljónir punda.



Ronaldo mun fara í læknisskoðun hjá Real á mánudagsmorgunn og í framhaldi af því mun hann verða kynntur sem nýr leikmaður félagssins. Með samningnum verður hann einn af sjö dýrustu knattspyrnumönnum veraldar.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.