Fotbolti.net
31.08.12 - 10:00
Elvar Geir Magnússon
Ítalska deildin

De Jong orðinn leikmaður AC Milan (Staðfest)

De Jong orðinn leikmaður AC Milan (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Nigel De Jong er orðinn leikmaður AC Milan. Þessi margreyndi hollenski landsliðsmaður kemur frá Manchester City en hann er enn ekki orðinn 28 ára.

Á heimasíðu AC Milan segir að með þessum kaupum sé liðið tilbúið undir það að berjast um ítalska meistaratitilinn.
De Jong er miðjumaður sem er harður í horn að taka en hann fæddist 30. nóvember 1984 og lék með Ajax gegn AC Milan í Meistaradeildinni á sínum tíma.

Nigel fór frá Ajax til Hamburg og þaðan til Manchester City. Hann hefur unnið sex titla, þrjá með Ajax og aðra þrjá með Manchester City.

Hollenskur meistaratitill, hollenskur bikarmeistaratitill, hollenskur ofurbikartitill, enskur úrvalsdeildartitill, FA-bikarinn og Samfélagsskjöldurinn.

Sjá einnig:
Staðfest félagaskipti á einum stað
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.