31.08.12 - 10:47
Elvar Geir Magnússon
Kieran Richardson í Fulham (Staðfest)

Mynd: Heimasíða Fulham

Mynd: Heimasíða Fulham
Menn eru sveittir á skrifstofu Fulham. Enn hefur ekkert verið staðfest varðandi Dimitar Berbatov og þá ríkir óvissa með Clint Dempsey.
Það er þó staðfest að Kieran Richardson er kominn í Fulham frá Sunderland og má sjá á meðfylgjandi mynd að hann er afskaplega ánægður með það.
Richardson er 27 ára og lék 149 leiki með Sunderland eftir að hann kom frá Manchester United 2007.
Hann á átta landsleiki og tvö mörk að baki fyrir England.
Richardson fær treyju númer 15. Hann er fjölhæfur sóknarsinnaður leikmaður sem getur spilað á vængjunum og einnig á miðjunni. Þá hefur hann leyst stöðu vinstri bakvarðar og leikið fyrir aftan fremsta mann.
Hjá Manchester United lék hann 81 leik á tæplega fimm árum, vann deildabikarinn 2006 og ensku úrvalsdeildina 2007. Hann var öflugur þegar hann lék á lánssamningi hjá West Bromwich Albion 2005 og hjálpaði liðinu að bjarga sér frá falli.
Sjá einnig:
Staðfest félagaskipti á einum stað