31.08.12 - 11:43
Magnús Már Einarsson
Charlie Adam til Stoke (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Stoke City hefur keypt miðjumanninn Charlie Adam frá Liverpool. Kaupverðið hefur ekki verið gefið upp en talið er að það sé í kringum fjórar milljónir punda.
Adam, sem er 26 ára, stóðst læknisskoðun hjá Stoke í morgun og skrifaði í kjölfarið undir fjögurra ára samning við félagið.

,,Það er ekkert leyndarmál að við höfum verið að reyna að fá fleiri mörk í liðið og því er frábært að fá Charlie,\" sagði Tony Pulis stjóri Stoke.
,,Hann mun ekki einungis hjálpa okkur með skapandi sendingum heldur skoraði hann líka tólf mörk með Blackpool í ensku úrvalsdeildinni fyrir tveimur tímabilum.\"
Adam gæti leikið sinn fyrsta leik með Stoke þegar liðið mætir Wigan í ensku úrvalsdeildinni á morgun.

Heimild: Heimasíða Stoke