Fotbolti.net
31.08.12 - 12:14
Magnús Már Einarsson

Park Chu-Young til Celta Vigo (Staðfest)

Park Chu-Young til Celta Vigo (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Celta Vigo hefur fengið framherjann Park Chu-Young á láni frá Arsenal út tímabilið.

Chu-Young kom til Arsenal frá Monaco fyrir um það bil einu ári síðan.

Hann lék hins vegar einungis sex leiki með aðalliði Arsenal á síðasta tímabili og skoraði eitt mark.

Í sumar var treyja númer 9 tekinn af Park þegar Lukas Podolski kom til Arsenal og nú er Suður-Kóreumaðurinn á förum á láni.

Chu-Young skoraði tvö mörk fyrir Suður-Kóreu á Ólympíuleikunum í sumar og hann mun reyna að setja mark sitt á spænska boltann í vetur.

Sjá einnig:
Staðfest félagaskipti á einum stað

Heimild: Goal

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.