Fotbolti.net
31.08.12 - 12:52
Magnús Már Einarsson

Giovani Dos Santos til Mallorca (Staðfest)

Giovani Dos Santos til Mallorca (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Mallorca hefur keypt mexíkóska kantmanninn Giovani dos Santos frá Tottenham Hotspur.
Dos Santos skrifaði undir fjögurra ára samning við Mallorca en hann hefur þar með náð að binda endi á martraðardvöl sína hjá Tottenham.

Þessi 23 ára gamli leikmaður kom til Tottenham frá Barcelona árið 2008 eftir að hafa verið inn og út úr byrjunarliðinu hjá Börsungum.

Dos Santos náði aldrei að festa sig í sessi hjá Tottenham en hann lék einungis 17 leiki á fjórum árum hjá félaginu.

Dos Santos fór einnig til Ipswich, Galatasaray og Racing Santander á láni á tíma sínum hjá Spurs.

Sjá einnig:
Staðfest félagaskipti á einum stað
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.