Fotbolti.net
31.08.12 - 13:12
Sebastían Sævarsson Meyer

Schalke fær Afellay á láni út tímabilið (Staðfest)

Schalke fær Afellay á láni út tímabilið (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Kvennalandslið
Schalke hefur staðfest að Ibrahim Afellay sé genginn til liðs við þýska úrvalsdeildarfélagið á láni út tímabilið frá Barcelona.

Þessi 26 ára kantmaður var efstur á óskalista Huub Stevens, þálfara Schalke, sem loksins hefur fengið sinn mann en hann var einnig orðaður við Tottenham.
Afellay kom til Barcelona frá PSV í byrjun árs 2011 en náði ekki að festa sig í sessi í byrjunarliði spænska stórveldisins.

Alvarleg meiðsli á hné á síðustu leiktíð settu einnig strik í reikninginn sem héldu honum frá keppni í sjö mánuði og kom hann því aðeins við sögu í fimm leikjum Barcelona.

Nú fær hann tækifæri til að spila reglulega og komast aftur í sitt gamla form en hann var í leikmannahópi Hollendinga á EM í sumar.

Sjá einnig:
Staðfest félagaskipti á einum stað
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.