31.08.12 - 14:33
Magnús Már Einarsson
Maicon og Richard Wright til Manchester City (Staðfest)

Maicon.

Mynd: Getty Images

Maicon.

Mynd: Getty Images
Manchester City hefur gengið frá kaupum á brasilíska hægri bakverðinum Maicon frá Inter. Talið er að kaupverðið sé í kringum þrjár milljónir punda.
Maicon mun berjast við Pablo Zabaleta og Micah Richards um hægri bakvarðarstöðuna hjá City.
Þessi 31 árs gamli Brasilíumaður hefur verið hjá Inter síðan árið 2006 þegar hann kom frá Monaco.

Þá hefur Manchester City einnig samið við markvörðinn Richard Wright en hann verður þriðji markvörður á eftir Joe Hart og Costel Pantilimon.
Hinn 34 ára gamli Wright hefur á ferli sínum meðal annars leikið með Arsenal, Everton og Ipswich Town.
Manchester City fékk einnig Scott Sinclair frá Swansea í morgun og möguleiki er á að Javi Garcia komi einnig frá Benfica sem og Matija Nastasic frá Fiorentina.