31.08.12 - 14:37
Sebastían Sævarsson Meyer
Javier Saviola til Malaga (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Malaga hefur tryggt sér þjónustu argentínska sóknarmannsins Javier Saviola sem kemur á frjálsri sölu frá Benfica.
Saviola skrifaði undir eins árs samning við spænska úrvalsdeildarfélagið en hann þurfti að sætta sig við mikla bekkjarsetu á síðustu leiktíð.

Þessi fyrrum leikmaður Barcelona og Real Madrid mun styrkja sónarlínu Malaga sem leikur í fyrsta sinn í sögu félagsins í riðlakeppni Meistaradeildarinnar í ár.
Saviola á 40 leiki að baki með argentínska landsliðinu.
Þá er Malaga einnig að semja við paragvæska sóknarmanninn Roque Santa Cruz frá Manchester City og ættu félagaskiptin að ganga í gegn í dag.