31.08.12 - 15:23
Magnús Már Einarsson
Hazard yngri til Ólafs Inga og félaga (Staðfest)

Ólafur Ingi Skúlason.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Ólafur Ingi Skúlason.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Belgíska félagið SV Zulte Waregem hefur fengið Thorgan Hazard til liðs við sig á láni frá Chelsea.
Thorgan gekk til liðs við Chelsea í sumar á svipuðum tíma og eldri bróðir hans Eden.
Thorgan lék með Lens á síðasta tímabili en hann hefur leikið með unglingaliði Chelsea í byrjun tímabils.
Thorgan gekk til liðs við Chelsea í sumar á svipuðum tíma og eldri bróðir hans Eden.
Thorgan lék með Lens á síðasta tímabili en hann hefur leikið með unglingaliði Chelsea í byrjun tímabils.
Hjá Zult Waregem verður hann liðsfélagi Ólafs Inga Skúlasonar en liðið hefur byrjað ágætlega í belgísku deildinni og situr í fimmta sæti eftir fimm umferðir.
Heimild: Heimasíða Chelsea
