31.08.12 - 16:15
Magnús Már Einarsson
Nicklas Bendtner til Juventus á láni (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Juventus hefur fengið Nicklas Bendtner framherja Arsenal á láni út tímabilið en félagið á síðan möguleika á að kaupa hann næsta sumar. Bendtner stóðst læknisskoðun hjá Juventus í dag og skrifaði í kjölfarið undir lánssamninginn.
Bendtner á enga framtíð hjá Arsenal en á síðasta tímabili var hann á láni hjá Sunderland.
Bendtner á enga framtíð hjá Arsenal en á síðasta tímabili var hann á láni hjá Sunderland.
,,,Ég er mjög stoltur og get ekki beðið eftir að spla í svart-hvítu. Ég vona að við eigum eftir að eiga frábæra tíma saman,\" sagði Bendtner á Twitter síðu sinni í dag.
Juventus hefur verið í leit að framherja í sumar en félagið reyndi að fá Robin van Persie frá Arsenal og Fernando Llorente frá Athletic BIlbao en án árangurs.
Á endanum ákvað því félagið að snúa sér að hinum 24 ára gamla Bendtner sem hefur leikið á Englandi allan sinn meistaraflokksferil.