Fotbolti.net
31.08.12 - 17:12
Ívan Guðjón Baldursson
Ítalska deildin

Alberto Gilardino til Bologna (Staðfest)

Alberto Gilardino skoraði 48 mörk sem leikmaður Fiorentina.

Alberto Gilardino skoraði 48 mörk sem leikmaður Fiorentina.

Canon

Mynd: Getty Images

Ítalska knattspyrnufélagið Bologna hefur staðfest kaupin á Alberto Gilardino, sóknarmanni Genoa.

Kaupverðið á Gilardino er ekki gefið upp en hann fékk lítið af tækifærum hjá Genoa þar sem hann spilaði aðeins fimm leiki frá komu sinni, en skoraði í þeim þrjú mörk.
,,Við höfum náð samkomulagi við Genoa um kaupin á Gilardino,\" stendur á vefsíðu Bologna.

Gilardino er þrítugur sóknarmaður sem er gríðarlega leikreyndur enda hefur hann spilað fyrir sex mismunandi lið á sínum atvinnumannaferli á Ítalíu.

Hann hóf ferilinn hjá Piacenza, var svo keyptur til Verona og þá til Parma, en hann sló fyrst í gegn sem leikmaður Parma og varð byrjunarliðsmaður í ítalska landsliðinu.

Milan keypti hann af Parma og Fiorentina fékk hann svo frá Milan, áður en hann fór til Genoa. Gilardino á 47 landsleiki að baki fyrir aðallandslið Ítalíu en í þeim skoraði hann 17 mörk.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.