Fotbolti.net
31.08.12 - 17:38
Hafliði Breiðfjörð

Jay Bothroyd lánaður frá QPR til Sheffield Wed (Staðfest)

Jay Bothroyd.

Jay Bothroyd.

Canon

Mynd: Getty Images

Sheffield Wednesday staðfesti í dag á vef sínum að Jay Bothroyd sé genginn í raðir félagsins frá QPR en hann kemur á láni fram í janúar á næsta ári.
Bothroyd hittir þar fyrir aftur stjórann Dave Jones sem stýrði honum hjá Cardiff City í ágúst árið 2008.

Hann er þrítugur framherji sem skoraði 45 mörk í 128 leikjum með Cardiff og var á þeim tíma einn af öflugustu framherjum Championship deildarinnar.

Hann hóf feril sinn hjá Arsenal í unglingastarfinu en fór þaðan til Covengtry á eina milljón punda árið 2000. Síðar spilaði hann með Perugia, Blackburn Rovers, Charlton Athletic, Wolverhampton Wanderers og Stoke City áður en hann fór til Cardiff.

Hann fór til QPR í júlí 2011 en er nú kominn til Sheffield Wednesday þar sem hann fær treyjunúmerið 24.

Heimild: Vefur Sheffield Wednesday

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.