31.08.12 - 18:13
Hafliði Breiðfjörð
Roque Santa Cruz til Malaga (Staðfest)

Roque Santa Cruz.

Mynd: Getty Images

Roque Santa Cruz.

Mynd: Getty Images
Malaga staðfesti á vef sínum í kvöld að félagið hafi gengið frá samkomulagi við Manchester City um að fá framherjann Roque Santa Cruz á láni út tímabilið.
Santa Cruz sem er landsliðsmaður Paragvæ kom til Malaga í gærkvöldi og gekkst undir læknisskoðun hjá Malaga í dag og er núna genginn til liðs við félagið og leikur því undir stjórn Manuel Pellegrini í vetur.
Santa Cruz hefur leikið með Olimpia í heimalandinu þar sem hann vann þrjá deildartitla, en síðar með Bayern Munchen, Blackburn Rovers og Manchester City auk Real Betis á Spáni þar sem hann var á láni á síðustu leiktíð.
Hann á að baki 901 landsleik fyrir Paragvæ og hefur skorað í þeim 25 mörk.

Heimild: Vefur Malaga