Fotbolti.net
31.08.12 - 19:20
Sebastían Sævarsson Meyer

Boyata lánaður til Twente (Staðfest)

Boyata lánaður til Twente (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

FC Twente hefur fengið Dedryck Boyata á láni út tímabilið frá Englandsmeisturum Manchester City.

Þessi 21 árs varnarmaður hefði ekki fengið stórt hlutverk í liði Manchester City í ár og fékk hann því leyfi til að fara á láni.
Leikmaðurinn var á láni hjá Boltoin á síðustu leiktíð þar sem hann spilaði 14 leiki og hefur nú aftur verið lánaður frá Manchester City.

Undir stjórn Steve McClaren er Twente er á toppi hollensku úrvalsdeildarinnar en liðið hefur verið að leita að liðsstyrk þar sem það ætlar að berjast um titilinn.

Boyata á einn landsleik að baki með Belgíu en hann var einnig orðaður við Celtic.

Sjá einnig:
Staðfest félagaskipti á einum stað
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.