31.08.12 - 20:56
Magnús Már Einarsson
Hugo Lloris til Tottenham (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Tottenham hefur keypt markvörðinn Hugo Lloris frá Lyon en kaupverðið hljóðar upp á átta milljónir punda.
Það verð gæti þó átt eftir að hækka um nokkrar milljónir punda ef Lloris stendur sig vel hjá Tottenham.
Lloris skrifaði undir fjögurra ára samning við Tottenham en þessi 25 ára gamli leikmaður hefur verið lykilmaður hjá Lyon frá því árið 2008.

Lloris mun berjast við hinn reynda Brad Friedel um markvarðarstöðuna hjá Tottenham.
Fyrir hjá félaginu eru einnig markverðirnir Carlo Cudicini og Heurelho Gomes.